Hvað gerir manneskju fallega?
maí 6, 2012 § Rita ummæli
“Beauty is not in the face; Beauty is a light in the heart.” eða ,,Fegurð er ekki í andlitinu; Fegurð er ljós í hjartanu” eftir Kahlil Gibran.
Mér þykir vænt um þessa tilvitnun og er sammála henni að því leiti að fegurð kemur innan frá, eða svo finnst mér a.m.k.
Þegar að manneskja er falleg að innan þá er eins og hún geisli; það er ákveðinn sjarmur í kringum svoleiðis manneskju; hún sendir frá sér jákvæða strauma og laðar þannig að sér fólk. Eiginleikar sem kenna svona manneskju eru t.d að hún er vingjarnleg, kærleiksrík, ástríðufull, virðingarfull, skilningsrík, jákvæð, bjartsýn, nærgætin, samúðarfull o.flr. Semsagt falleg sál sem kemur vel fram við náungann, burt séð frá stétt, kyni, kynþátt, trú eða aldri. Svona manneskja vex ekki á hverju strái og finnst mér hún mun fallegri og merkilegri en einhver sem útlitsdýrkar einhverja staðalímynd, og/eða reynir að vera eins og allir hinir, eða jafnvel með það markmið að vera flottari og sætari en allir hinir.
Fegurð er fyrir utan egóið; Fegurð er að vera ánægður með sjálfan sig og líða vel í eigin skinni, fegurð er að vera til staðar í núinu og geta horft í kringum sig og notið hinnar sönnu friðsælu fegurðar sem náttúran er svo góð að bjóða upp á. Það er hægt að finna fegurð eða eitthvað fallegt og jákvætt í öllum hlutum og lífverum.
Þessu geta eflaust einhverjir mótmælt sem dæma fegurð eftir vaxtalagi, fatastíl, hárlit, samfélagsstöðu og dauðum hlutum (bíl, húsi, peningum o.s.frv.). En það er veruleikinn sem þau ákjósa sér og velja heils hugar. En það er auðvitað erfitt að láta sig ósnortinn við þessu því í hverju blaði, á hverju auglýsingarskilti, auglýsingum í sjónvarpinu o.flr. er verið að segja manni hvað okkur á að þykja fallegt, og þá er ekkert óeðlilegt að fólk verði óöruggt með sinn eigin smekk því að hann er ekki nákvæmlega eins og það sem auglýsingin sagði að væri flott og í tísku. Samfélagið væri eflaust betra ef að fólk myndi slíta sig laust úr þessum áróðri og reyna frekar að fara sínar eigin leiðir og tala frá sínu eigin hjarta, sleppa því að spurja hvað öðrum finnst og fara bara í það sem að því líður vel í og það sem því sjálfum þykir fallegt. Það er sannkölluð fegurð sem liggur í því að vera bara maður sjálfur, alveg óhræddur um hvað öðrum finnst. Þannig skín geislinn í gegn.
Svo niðurstaðan mín er sú að fegurðin býr innra með okkur öllum, við þurfum bara að finna hana og láta hana skína. Það sem gerir manneskju fallega er það hvernig hún er innanfrá en ekki utanfrá. Fegurðin er einnig móðir náttúra og við erum öll börn náttúrunnar. Við megum bara ekki missa tenginguna við náttúruna og okkar æðra sjálf.
Verðum við að slást?
maí 6, 2012 § Rita ummæli
Að mínu mati þá finnst mér að við ættum ekki að þurfa að slást, síður en svo. Þegar að menningin og þróunin er komin á það stig að á mörgum stöðum í heiminum óttast fólk um líf sitt og annara í kringum sig; það gengur um með skotvopn sér til varnar. Það slæst í þeim tilgangi að halda lífi og til þess að verja t.d börnin sín og/eða landið sitt. Það er afskaplega sorglegt en því miður staðreynd, þetta er allt í gangi í þessum töluðu orðum, hvort sem að íbúar jarðar sem ekki taka þátt í þessum skrípaleik séu samþykkir eða ekki. Og svo er auðvitað mikið um það að fólk sé hreinlega platað til þess að gerast hermenn, það er logið að þeim að þeir séu að berjast fyrir land og þjóð og séu einhversskonar hetjur, þegar í rauninni eru þeir að drepa saklaust fólk; konur og börn sem hafa ekkert verra gert en að fæðast sem íbúar Iraq, Afganisthan eða annara þjóða sem hafa þurft að þola innrás hermanna, skriðdreka, sprengja og loftskota. Og svo auðvitað spilar græðgin stóran leik í þessu leikriti, því að auðvitað er einhver að græða á þessum endalausu kaupum á hátækni skotvopnum og farartækjum og svo held ég að það sé lítil tilviljun að flestar þessara þjóða sem hafa þurft að þola innrás séu ríkar af olíu og öðrum auðlindum. En sem betur fer er mikil vakning í gangi í þessum málum og eru Amerískir hermenn komnir með herferð þar sem þeir segja hina sönnu hlið á þessum viðbjóðslegu stríðum.
Það geta ekki verið endalaus stríð ef það eru engir hermenn til þess að berjast, ekki satt?
Það er ekki hægt að neyða fólk til þess að slást og drepa. Ég tel það ekki vera í eðli mannsins, ég trúi því ekki. En því miður höfum við villst, við höfum farið rangt að svo mörgu og við höfum látið svo margt viðgangast sem ætti ekki að viðgangast lengur. Mig undrar ekki þær háu tölur sem sýna hversu mikið götu ofbeldi sé t.d. í Bandaríkjunum; þar er réttarkerfið mjög strangt og getur fólk þar endað í fangelsi fyrir minniháttar glæpi, þar kynnist það síðan öðrum föngum sem sitja inni fyrir alvarlegri glæpi og svo læra þeir hver af öðrum. Og svo tala ég nú ekki um hræðsluna sem hlítur að myndast innra með einstakling sem þarf að sitja af sér slíka vist. Þar eru hrottarleg slagsmál daglega, fólk er myrt og misnotað af öðrum föngum. Auðvitað er þetta heilsuspillandi og ég sé ekki hvernig þetta er að hjálpa neinum af þeim? Fangelsin eru að búa til glæpamenn. Fangelsisvist gæti reynst mörgum föngum góður skóli t.d einhverjum þeirra sem var handtekinn fyrir að selja kannabis en kom úr fangelsinu með fullkomna kunnáttu af falsaskjali, innbrotum og/eða ofbeldisglæpum. Það hlítur að koma tími þar sem að fólk fer að átta sig á því að þetta er ekki að virka fyrir neinn nema þá sem reka þessi risastóru einkareknu fangelsi og græða summur af peningum fyrir hvern þann einstakling sem þarf að dúsa þar inni. Það verður einhver að taka af skarið og finna nýja og betri lausn. Ég skil ekki afhverju það eru ekki einhversskonar þróunarkenndar rannsakanir á hverjum degi? það er alltaf hægt að þróa og bæta allt, afhverju að stoppa þegar það gætu verið svo ótal betri lausnir?
Svo eru auðvitað búin að myndast stríð og ófarir vegna trúarbragða og fólk hefur alla tíð verið ósammála og dæmt aðra eftir trúarbragði þeirra. Trúarbrögð þykja mér afar grunsamlegt fyrirbæri, þar sem þau hafa öll svipaðan boðskap en ólíka guði og sögu persónur. Heimurinn væri mun betri ef að fólk myndi hætta að leitast eftir einhverju æðra og myndi átta sig á að við erum öll guðir; það sem við hugsum getum við gert að veruleika.
Hvaða bygging, leikrit, handrit, listaverk sem er voru einhvertíman hugsun einhverrar manneskju, hún fékk hugmynd sem hún síðan kom niður á blað og í framhaldi af því kom sér úti um efni svosem tré, nagla og hamar og bjó til stólinn, borðið eða skúlptúrinn sem eitt sinn var aðeins lítil hugdetta. Við getum gert allt það sem við viljum, ef við viljum það nógu mikið og ef við trúum því.
Það er eins og einhverstaðar á þróunarskeiði mannfólksins þegar fólkið var að uppgötva og læra og var að reyna að komast að sannleika jarðarinnar og lífsins; hafi einhver komið með einhverja kenningu, svo sem kenningu um Jesús eða Allah eða hvaða guð sem er og fólk hafi hugsað: “Jah, þetta hljómar bara mjög sennilega , ég ætla að trúa þessu bara”…. Og hætti síðan að spyrja sig: Hvað er ég? Hvað er lífið? Hvað er þetta allt eignlega? Því að þau voru bara sátt með hugmyndina um Guð og ákváðu að hætta að leita. Og þarna er eins og að þroskun og þróun mannkynsins hafi bara staðnað, því við ættum að vera orðin þróaðari og þroskaðri en þetta! Við ættum að geta lifað í sátt og samlindi og elskað hvert annað en ekki reynt að tortríma hvert öðru. Ef að allir myndu hætta að dýrka einhverja guði og reyna að lifa eftir sannleika hjartans og átta sig á því að við komum öll að sömu jörð, að jörðin okkar er lifandi líffvera og hún er uppspretta okkar allra, ef það væri ekki fyrir hana þá væri ekkert af okkur til. Ef að fólk myndi byrja að átta sig meira á því og að jörðin sjálf myndi byrja að skipta fólki meira máli, því færi að þykja vænt um, bera virðingu fyrir og þ.a.l. hugsa vel um jörðina og um sig sjálf í leiðinni (og þá sérstaklega læra andlega iðkun t.d hugleiðslu) þá myndi ofbeldið eflaust minnka.
Því núna erum við á rangri braut og við vitum það öll innst inni. Við erum að eyðileggja plánetuna okkar og við erum að láta það viðgangast að sum börn jarðarinnar svelta úr hungri á meðan annað fólk er að deyja úr offfitu. Hvorugt er réttlátt. Afhverju getum við ekki fundið milliveginn? Einhvern gullin meðalveg þar sem allir hafa nóg og enginn er að svelta? Ég trúi því að einn daginn mun mannfólkið þroskast og átta sig á að við erum öll eitt, við erum öll jarðarbúar og komum af sömu jörð, hvort sem við erum afrísk, íslensk, frönsk eða kínversk. Við eigum að hugsa vel um jörðina og hvert annað en ekki eyðileggja hana og drepa hvert annað. Það er löngu kominn tími á breytingu.
Þessu er nú alveg hægt að mótmæla og einhverjir myndu eflaust kalla mig klikkaða fyrir svona hugsunarhátt eða óvenju bjartsýna.
En niðurstaðan mín er sú að við gætum vel lifað í sátt og samlindi án þess að slást. Ef við myndum vinna markvisst og saman að því markmiði.
Kannabis, stórhættulegt eiturlyf… eða ekki?
apríl 25, 2012 § Rita ummæli
Ég hef verið að fylgjast með umræðum á facebook þar sem fólk hefur skiptar skoðanir á atburðum sem gerðust á 4/20:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/04/24/reyktu_ad_vild_a_austurvelli/
Ég hef meðal annars séð fólk flokka kannabis í sama flokk og morfín og heróin og ég hef einnig heyrt fólk segja að kannabis sé jafn skaðmikið og áfengi og sígarettur. Einnig sá ég eina skrifa að greindavísitala þeirra sem reykja gras væri lærri. Ekki veit ég hvaðan hún fékk það, en það er svo sannarlega ekki raunin.
Þetta þykir mér afar sorglegt að lesa og finnst það miður hversu óupplýst fólk í dag er varðandi kannabis og önnur efni.
Lengi vel hefur verið logið að fólki um skaðsemi þessa efnis, svosem í skólum og fræðslum eins og Marita fræðslunni.
Málið er nefnilega það, að kannabis er ekki nálægt því að vera eins skaðmikið og áfengi og sígarettur eru, þvert á móti.
Áfengi og sígarettur drepa tugþúsundir manna ár hvert, en kannabis hefur ekki drepið einn einasta mann, aldrei.
Sú staðreynd ein og sér ætti að vekja fólk til umhugsunar, en því miður þá er staðreyndin ekki sú. Fólk trúir því enn í dag að kannabis sé “class 1 drug” eða í sama skaðaflokki og morfín og heróín.
Er ekki kominn tími til að leiðrétta þennan stórfellda misskilning?
Ég get ekki skilið það hvers vegna kannabis er ólöglegt á meðan eitur eins og áfengi og sígarettur eru lögleg, að mínu mati er það eintóm hræsni. Hver er það sem ákveður það hvað ég og þú setjum ofan í okkur? Hver ert þú eða hann til þess að ákveða hvað ég geri við minn eigin líkama? Ég sé ekki annað en að það sé einungis skortur á mannlegu frelsi.
Ef að þú hugsar ,,já, en fólk undir áhrifum er skaðlegt sjálfum sér og öðrum”
Þá skil ég hvernig þú hugsar og hvert þú ert að fara… En staldraðu við og hugsaðu þetta aðeins dýpra.
Í fyrsta lagi, þá er ólöglegt að ráðast á aðra eða brjóta og bramla annara manna eigur o.s.frv. þannig að ef að manneskja undir áhrifum eiturlyfja brýtur af sér á þann hátt, þá mun þeirri manneskju vera refsað fyrir þau lög sem hann/hún braut.. Þannig að ef að manneskja er undir áhrifum einhverra eiturlyfja og ræðst á aðra manneskju, þá mun sú manneskja vera handtekin fyrir það að ráðast á manneskjuna, so there’s that.
Ef að manneskja undir áhrifum áfengis ræðst á aðra manneskju, þá gildir það sama um hana, hún/hann verður handtekinn fyrir líkamsárás, en ekki fá þeir neinn auka dóm eða auka sekt fyrir að vera undir áhrifum áfengis eða fyrir að vera með 3 bjóra á sér. Afhverju gildir það sama ekki um eiturlyfjanotendur? Ég meina þetta eru allt eiturlyf, líka áfengi. Er þetta ekki soldið ósanngjarnt?
Og svo tala ég nú ekki um muninn á hugsunarhætti og framkæmd fólks sem eru undir áhrifum kannabis og þeim sem eru undir áhrifum áfengis. Eins og þið vitið þá eiga það margir til að missa stjórn á skapi sínu og/eða hegðun þegar þeir eru undir áhrifum áfengis; þeir eru mun líklegri til þess að lenda í slagsmálum, vera með læti og/eða óspektir, keyra undir áhrifum og þ.a.l. hættusamir gangnvart öðrum í umferðinni o.s.frv.
En það sem margt fólk veit ekki um kannabis er að það hefur ekki næstum því eins persónubreytandi áhrif og áfengi hefur og það er svo sannarlega ekki eins skaðmikið fyrir líkamann. Þið ættuð öll að vita það að áfengi er eins og eitur fyrir líkamann, annars myndi maður ekki vakna hálf veikur eftir fyllerí, aumur og sár um allan líkamann. Þegar þú vaknar daginn eftir að hafa reykt gras er ekkert svoleiðis. Og það fyndna er, að þegar að manni verkjar um allan líkamann eftir fylleríið kvöldið áður og fær sér eina jónu, þá hverfur verkurinn eða minnkar til muna. Þannig það ætti aðeins að varpa ljósi á muninum sem þarna er á milli.
Einnig hafa nýjar rannsóknir leitt í ljós ýmislegt sem vert er að athuga, t.d las ég grein sem sagði frá rannsókn sem gerð var á 5000+ einstaklingum, þessu fólki var skipt niður í 3 hópa; fyrsti hópurinn reykti sígarettur, annar hópurinn reykti kannabis og sá þriðji reykti ekki neitt. Eftir 20 ár af þessari rannsókn kom í ljós að lungun á þeim sem reyktu gras voru betri en lungun á þeim sem ekki reyktu neitt. Hvað segir það ykkur?
En því miður þá eru ekki nægilega margar rannsóknir gerðar og tel ég það einungis vera vegna þess að þetta er ólöglegt. Ímyndið ykkur hvað við gætum þróast og þroskast sem samfélag ef að fólk myndi hætta að vera með svo lokaða huga og myndi frekar rannsaka í stað þess að dæma og banna. Það væri eflaust löngu búið að finna ótal hætti til þess að nota þessa plöntu til hins góða.
Við lifum á 21 öldinni, ég hef fylgst með tækninni breytast og þróast á svo óskaplega hraðan hátt að það er alveg ótrúlegt. Hvernig stendur á því að við séum að uppgötva og þróa svo marga frábæra hluti svosem internetið, snjallsíma, fartölvur o.s.frv. en samt stöndum við í stað varðandi mun mikilvægari málefni?
T.d þessi fíkniefnalög, það eru liðin rúmlega 40 ár síðan að gras var gert ólöglegt (allavega í Bandaríkjunum) og “The war on drugs” hófst, eins og við ættum öll að vita þá hefur það ekki virkað neitt rosalega vel hingað til. Fíkniefnaneysla hefur aukist en ekki minnkað og það hefur myndast risastór svartur markaður og af honum skapar mikil ógn og hætta.
Það ætti að vera öllum ljóst að hvort sem að þessi lög eru í gildi eður ei, þá mun fíkniefnaneysla og sala aldrei hverfa. Þannig tilhvers í ósköpunum erum við að borga í skatt og eyða milljónum í það eitt að handsama einhverja “hasshausa” sem eru ekki að gera neinum neitt? Í stað þess að nýta þennan pening í eitthvað uppbyggilegt og nytsamlegt. Haldið þið að borgin væri ekki mun betri ef að allar löggurnar væru að reyna að hindra slagsmál, morð, nauðganir, innbrot, þjófnað, misþyrmingar, mannrán o.s.frv?
Og ef einhver hérna hugsar ,,Já, en dópistar eru að brjótast inn til þess að eiga fyrir næsta skammt” þá vil ég endilega benda á það, að ef að öll eiturlyf væru lögleg þá þyrfti þetta fólk eflaust ekki að vera að brjótast inn eða ræna aðra, því að þið ættuð að gera ykkur grein fyrir því hvernig þessi business virkar; segjum sem svo að einstaklingur er langt leyddur í neyslu t.d kókaíns, einstaklingurinn er orðinn líkamlega háður því og gerði þau mistök að fá lánað nokkur “slög” hjá einhverjum dópsala. Honum tekst síðan ekki að borga á réttum tíma og þá hringir handrukkari í hann og segir honum t.d að ef að hann borgi ekki innan 24 tíma þá verður hann laminn til óbóta, þetta gæti jafnvel gengið það langt að hann myndi byrja á því að ganga í skrokk á honum til þess að hræða hann eða myndi hóta honum á einhvern viðbjóðslegan hátt, þannig greyið “dópistinn” sem samfélagið kallar “glæpamann” fyrir að gera sjálfum sér þann grikk að ánetjast fíkniefnum þarf dauðskelkaður og peningalaus að redda sér ákveðinni upphæð innan 24 tíma (eða hvaða tíma sem það er sem handrukkarinn gefur honum). Ef að sá sami einstaklingur trúir því að hann sé jafnvel í lífshættu ef að hann borgar ekki, þá er hann vís til þess að brjótast inn einhverstaðar til þess að verða sér úti um pening, vegna þess að hann hræðist afleiðingar þess ef hann borgar ekki (og ég hef alveg heyrt sögur þar sem að handrukkarar hóta fjölskyldu og jafnvel börnum einstaklingsins).
Það var einmitt frétt hérna um dagin sem sagði frá ungum manni sem kom inn í apótek og sagðist þurfa að ræna af þeim pening til þess að geta borgað skuld, greyið strákurinn var miður sín og sýndi ekkert nema kurteisi og gaf það verulega í skyn að honum langaði ekki að ræna apótekið heldur varð hann að gera það annars væri út um hann.
Ímyndið ykkur nú, að öll eiturlyf væru lögleg. Haldiði að þetta vandamál væri jafn slæmt? Eða jafnvel enn til staðar?
Ef að það yrði litið á eiturlyfjafíkla sem sjúklinga en ekki glæpamenn. Að þeim yrði hjálpað en ekki hent inn í fangelsi (þar sem þau myndu eflaust koma út verri og eflaust með einhverjar glæpsamlegar kunnáttur sem þau kunnu ekki áður). Ef að þetta væri löglegt þá væri hægt að fylgjast með neyslu fólks og þeim gæti verið hjálpað. Og einnig væri mun hættuminna að eiga í skuld við apótek/ríkið í stað þess að eiga í skuld við einhvern stórhættulegan glæpamann. Ég get ekki séð fram á það að það ætti að vera slæmt fyrir þjóðfélagið, við þurfum að losna við þennan svarta markað og þessa glæpamenn sem eru orðnir moldríkir af því að flytja inn og selja eiturlyf. Og vá, ímyndið ykkur ef þetta væri skattlagt, hvað ríkið væri að græða marga milljarða á ári? Því þetta er hérna til sölu, hvort sem ykkur líkar það eða ekki. Og það er svo sannarlega ekki að fara neitt.
Í portúgal voru öll eiturlyf gerð lögleg, núna rúmlega 10 árum seinna hafa fíkniefnasjúklingum fækkað um yfir helming, HIV smit hafa minnkað svo um munar og glæpir tengdir fíkniefnum hafa minnkað ( http://www.visir.is/fikniefnasjuklingum-faekkar-um-helming-i-portugal/article/2012120219133 ).
Þarna höfum við sönnun fyrir því að það er betri kostur að hafa þetta löglegt en að halda áfram að halda þessu ólöglegu. Mér finnst líka alveg ótrúlegt að þegar það hefur verið prufað að hafa þetta svona, það virðist ekki virka en samt er ekki verið að huga að því að breyta þessu? Við getum ekki haldið í gamlar hefðir sem virka ekki og bara vonast til þess að þær byrji að virka. Við ættum að vera orðin nógu klár og þroskuð sem mannkyn til þess að fatta þetta.
Og svo vil ég einnig benda á það að kannabis hefur verið notað til lækninga oft og mörgum sinnum, samt virðist fólk ekki trúa því og heldur áfram að ljúga að sér að þetta sé bara stórhættulegt eiturlyf og að ekkert jákvætt stafi að því. Annað myndi þessi litli strákur segja ykkur:
Og svo tala ég ekki um parkison’s sjúklinga og aðra taugaveika sem nota kannabis til þess að lina verki og kippi (þið getið fundið sannanir útum allt internetið) en samt þurfa þau að halda áfram að brjóta lögin og gera þetta ólöglega, afþví að einhver ákvað það að þau mættu ekki ráða fyrir sig sjálf, einhver þarna úti þykist hafa það mikið vald að hann/hún geti bannað okkur hinum hvað við getum við okkar eigin líkama. Það er komið nóg! Þetta er fáránlegt og svo afskaplega rangt.
Ég vona bara að fólk fari aðeins að hugsa dýpra og byrji að setja spurningamerki við það sem það les og heyrir og hættir að trúa öllu því sem aðrir segja því. Takið ykkar eigin ákvarðanir og myndið ykkar eigin skoðanir. Við þurfum að uppfæra lögin eftir því hvernig samfélagið stendur en ekki halda í eldgömul lög sem virka ekki lengur. Það er ekki að ástæðu lausu að allt þetta fólk reyki gras, það er vegna þess að það hefur sína eigin reynslu og það veit að það sem að því hefur verið sagt er ekki satt. Það á enginn að eiga rétt á því að segja neinum hvað hann skal gera við eigin líkama. Og svo er okkur sagt að við höfum frelsi? Ekki finnst mér það mikið frelsi ef að ég má ekki reykja eina jónu án þess að vera kölluð dópisti eða glæpamaður, á meðan blindfullt fólk ráfar um bæinn og rífur kjaft og það er bara talið allt í góðu.
Hinn mikli meistari Ron Paul er alveg með þetta á hreinu:
Og svona aðeins til að gera ykkur grein fyrir áhrifum kannabis, þá er það ekki þannig að maður missir stjórn á eigin hegðun og fer að haga sér eins og bjáni eins og þegar maður gerir undir áhrifum áfengis. Það gerir eiginlega akkurat andstæðuna, þegar maður er “freðinn” þá er maður afskaplega meðvitaður um sjálfan sig og hvað er að gerast í kringum mann, tónlist verður betri og fallegri, matur bragðast betur og maður finnur fyrir hamingju tilfinningu. Það versta sem getur gerst er að maður reykir það mikið að maður “coxar” sem þýðir einfaldlega það að maður sofnar (einhver gæti hafa lent í því að fá “hvítuna” en sú manneskja hefur ekki verið að nota kannabis hóflega og þessvegna hefur það kannski farið illa í þá manneskju, en það er langt því frá að vera hættulegt en það gæti verið mjög óþæginlegt, en það eru alls ekki allir sem lenda í þessu og ég veit ekki um neinn sem hefur lent í þessu oftar en 1x) og svo hafa einhverjir upplifað “paranoyu” en það er ekki skrítið að fólk verði paranoyað þegar það veit að það er að brjóta lögin, það veit að ef að fólkið í kring fatti að það var að reykja ólöglegt vímuefni muni það dæma það og/eða skamma það, það getur orðið paranoyað að löggan fatti það og að þau munu lenda í veseni, ég efast um að fólk yrði jafn paranoyað ef að það væri ekkert til að paranoya yfir, ef að öllum væri bara sama hvað þú værir að gera við þinn eigin líkama.
En vanalega fer maður ekki að æla eins og maður myndi gera ef maður drekkur of mikið áfengi, maður fer ekki að öskra og haga sér eins og hálfviti, maður myndi eflaust hugsa enn dýpra um afleiðingar framkvæmda sinna og þar af leiðandi hegða sér vel en ekki eins og asni. Fólk undir áhrifum kannabis er ekki líklegt til þess að lenda í rifrildum eða slagsmálum, það myndi ekki nenna því, manni langar bara að slaka á og njóta lífsins þegar maður er “freðinn”, annað sem þeir sem reykja eiga sameiginlegt er að þeir hugsa mikið og djúpt, munurinn á því að tala við hóp af fullu fólki og hóp af freðnu fólki er að fulla fólkið er oftar en ekki talandi ofan í hvort annað um eitthvað bull sem skiptir engu máli, misskilur hvort annað og jafnvel rífur bara kjaft (ekki allir, en margir fullir einstaklingar eiga það til). Á meðan hópurinn af freðna fólkinu væri eflaust að ræða um einhver heimsspekileg málefni, jörðina, pólitík, listir, tónlist o.s.frv. það er engin tilviljun að heilmargir listamenn reykja kannabis, það er vegna þess að það eykur sköpunargáfu og dýpkar hugsunarhátt. Ég á ótal marga vini sem reykja gras og flestir þeirra eru listafólk sem býr til tónlist, semur texta, málar myndir, dansar, tekur myndir o.s.frv. þannig að ég get hreinlega ekki séð hvernig þetta á að vera “class 1 drug” eða jafn skaðmikið og áfengi og sígarettur. Það meikar engann sense.
En auðvitað er hægt að nota kannabis á rangan hátt, eins og svo margt annað, það er ekki skynsamlegt að reykja á hverjum degi, alveg eins og það er ekki skynsamlegt að spila í spilakössum á hverjum degi eða drekka áfengi á hverjum degi eða borða skyndibita í öll mál, en samt er það löglegt. Það er ekki hægt að banna bara allt vegna þess að nokkrir einstaklingar kunna sér ekki hóf og misnota vöruna. Annars væri allt ólöglegt.
Og svo er annað vandamál og það er að það er mun auðveldara fyrir unglinga að redda sér eiturlyfjum heldur en það er að redda sér t.d áfengi, til þess að kaupa kannabis eða önnur eiturlyf þarf maður einungis að redda númeri hjá einhverjum sala og hann mun selja þér hvað sem þú vilt kaupa án þess að spurja um aldur. Þannig að það væri mjög skynsamlegt að lögleiða þetta og setja á þetta aldurstakmark og fylgjast með neyslu landans.
Og ef eitthvað er þá eru þessi lög aðeins að gera þetta meira spennandi frekar en öfugt, unglingum finnst oftar en ekki gaman að gera það sem er bannað og þeir eru margir hver mjög forvitnir. Þannig að þessi lög eru ekki að stoppa neinn, svo að það sé alveg á hreinu.
HEMPUR.
Ef að þið ekki vissuð nú þegar, þá er hempur partur af plöntunni sjálfri og hægt er að búa til ýmislegt nitsamlegt úr honum, svo sem efni sem er sterkari en bómull og hægt er að vinna föt, skó og fleira úr, hemp fræin og hemp olían eru frábær í matargerð og eru þau eitt það hollasta sem þú getur látið ofan í þig og þar sem hemp olían er svo holl þá er hún notuð í allskyns snyrtivörur t.d hárvörur og hreinsivörur; sem eru margfalt betri fyrir líkamann heldur en þessi efni sem við kaupum út í búð og eru full af aukaefnum og eitrum. Einnig er hægt að búa til plast og bensín og svo er hægt að búa til efni sem getur komið í stað fyrir við og fleira sem við byggjum t.d hús úr og seinast en ekki síst er hægt að búa til frábæran pappír úr hemp.
Ímyndið ykkur hvað við gætum bjargað mörgum trjám ef við myndum byrja að vinna pappír úr hemp og ímyndið ykkur einnig hvað það myndi taka mun styttri tíma, það tekur mörg ár fyrir tré að vaxa en það tekur aðeins nokkra mánuði fyrir hemp/kannabis plöntu að vaxa.
Afhverju erum við ekki að reyna að bjarga plánetunni í stað þess að eyðileggja hana? Aðeins vegna fáfræðis og dómgreindarleysis. Hvenær ætlar fólk að hætta að mynda sér skoðanir eftir skoðunum annara? Og byrja að hugsa sjálfstætt í stað þess að láta mata sig af annara manna skoðunum og áróðri?
“Unlike fossil fuels, biofuels are renewable and produce less of the greenhouse gas carbon monoxide” þarna segir að bensín unnið úr hemp sé endurnýjanlegt og að það myndar minna af skaðlegu gasi sem kallast “Carbon Monoxide”. Ef að við værum að vinna bensín úr hemp, þá væri það svo mun skaðminna fyrir umhverfið þar sem að akurinn af plöntunum myndi búa til nógu mikið súrefni til þess að jafna út súrefnið sem bensínið skaðar.
Ætlið þið bara að sitja aðgerðarlaus og samþykkja það að borga annan handleggin fyrir bensín á bílinn ykkar sem er bæði óumhverfisvænt og ALLTOF dýrt. Í stað þess að hugsa aðeins lengra og reyna að finna nýja og betri leið? Ég efast um að einhver ykkar finnist gaman að eyða svona miklum pening í eitthvað sem við þyrftum ekki að eyða svona miklum pening í. Það sem þarf að gerast er að fólk þarf að hætta að sætta sig við hlutina eins og þeir eru, þeir þurfa ekki að vera svona, það eru til ótal leiðir til þess að framleiða ódýrara og umhverfisvænna bensín en samt heyri ég engann mótmæla? Hvað er það?
En ég ætla ekki alveg að gleyma mér, best að koma sér aftur að efninu:
Ég tel það vera mun betra að fræða fólk í stað þess að hræða það. Það myndi skila sér mun betur fyrir ungt fólk að geta opnað sig fyrir foreldrum og öðrum um neyslu sína í stað þess að fela hana og lifa þannig 2 lífum (vegna þess að það er hrætt um að vera skammað, dæmt, sektað eða jafnvel sett í fangelsi) og það væri einnig gott fyrir þau að vita nákvæmlega hvernig þetta virkar, bæði kosti og galla og svo geta þau tekið ákvörðun fyrir sjálft sig vitandi nákvæmlega út í hvað þau eru að fara. Við erum ekki hálfvitar, við vitum alveg að sum þessi eiturlyf geta verið mjög skaðleg, en það hefur ekki stoppað neinn hingað til. En þetta mun ekki breytast fyrr en að fólk hættir að dæma og sættir sig við þetta eins og þetta er. Fólk sem reykir gras um helgar er ekki meiri dópistar en þeir sem drekka áfengi um helgar. Og það er mjög rangt og ósanngjarnt að þetta sé flokkað svoleiðis.
Ef þið viljið að alvöru vita eitthvað um kannabis og hvernig það virkar, þá mæli ég eindregið með þessari heimildarmynd sem útskýrir þetta ýtarlega.
Takk fyrir mig.